Hard Rock cafe Reykjavik
Phone Icon
Address Icon
Taka frá

Powered by OpenTable Logo

Language

Welcome to Hard Rock Cafe Reykjavik

HARD ROCK CAFE REYKJAVIK

Stofnað 30 október, 2016

Hard Rock Cafe Reykjavík er staðsett við Lækjargötu, í hjarta miðborgarinnar. Við sameinum alþjóðlegt Hard Rock andrúmsloft við kraftinn og sköpunina sem einkenna Reykjavík.

Á jarðhæðinni er Rock Shop® verslunin okkar með einkaréttum Hard Rock vörum og sérmerktum Reykjavík safngripum. Á efri hæðinni er aðal veitingasalurinn með opnu eldhúsi, 141 sæti og 45 sæti við bar, lifandi og notalegt rými fyrir hádegismat, kvöldverð eða drykki með vinum.

Hvort sem þú ert að hittast eftir vinnu, halda upp á tilefni eða einfaldlega njóta kvöldsins í miðbænum, býður Hard Rock Cafe Reykjavík upp á vandaðan mat, handgerða kokteila og afslappað en kraftmikið andrúmsloft, í miðju borgarlífsins.

Bókaðu borð og sjáumst í miðbænum.

Opnunartímar:

OPNUNARTÍMI VEITINGASTAÐAR:

Mánudaga 16:00-22:00

Þriðjudaga 16:00-22:00

Miðvikudaga 16:00-22:00

Fimmtudaga 16:00-22:00

Föstudaga 12:00-23:00

Laugardaga 12:00-23:00

Sunnudaga 12:00-22:00

Eldhúsið lokar 1 klst fyr

OPNUNARTÍMI ROCK SHOP® :

Alla daga frá 12:00-21:00

Stemning & samfélag

Hard Rock Cafe Reykjavík er hluti af borgarlífinu, staður þar sem fólk hittist reglulega, heldur upp á tilefni eða skellir sér í drykk eftir vinnu. Hér blandast kraftmikil stemning og afslappað andrúmsloft á náttúrulegan hátt.

Gæði í hverju smáatriði

Við leggjum metnað í hráefni, framsetningu og þjónustu. Matseðillinn býður upp á vel útfærða klassík og kokteila sem henta bæði rólegum kvöldum og líflegum samverustundum.

Viðburðir & hópar

Hvort sem um er að ræða fyrirtækjakvöld, afmæli eða aðra viðburði, bjóðum við upp á sérsniðnar lausnir og sveigjanlegt skipulag sem gerir hvert tilefni eftirminnilegt.

Bókanir & samband

Við tökum vel á móti gestum án bókunar og leggjum okkur fram um að finna borð eins fljótt og auðið er.

Fyrir hópa stærri en 9 manns biðjum við um að haft sé samband fyrirfram á
groups@hrcreykjavik.com

Einnig er hægt að ná í okkur í síma 560 0803 eða fylgja okkur á Facebook fyrir fréttir og viðburði.

Við hlökkum til að taka á móti þér.

KÍKTU Á OKKUR Á FACEBOOK!

VELKOMIN Í ALGENGU SPURNINGARNAR OKKAR. 

Þú hefur fundið yfirlitið yfir algengar spurningar sem við fáum hér á Hard Rock Café Reykjavik alltaf, hér reynum við að svara þeim spurningum sem gætu komið upp á skilvirkan og góðan hátt. Ef við svörum ekki spurningu þinni hér skaltu ekki hika við að senda okkur línu á facebook eða á  info@hrcreykjavik.com.

Hard Rock Cafe Reykjavik


Heyrðu í okkur

Hard Rock Cafe Black Logo
REYKJAVIK

HAFA SAMBAND

VEGVÍSIR OG BÍLASTÆÐI

FOLLOW US @HARDROCKCAFE
Hard Rock Cafe Footer Logo

Connect

Copyright ©
Hard Rock International (USA), Inc.

Scroll to Top